blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

6.03.2005

Fleiri dýr og Djúran

Ég fréttti í gær að Birta fengi annan hamstur í afmælis gjöf .. ufff... Vinkonan fékk að gefa henni eitt dýr með þeim skylirðum að dýrið væri kvenkyns! Kanski eiga þá þær bara eftir að éta hvor aðra..!! Veit ekki .. sjáum hvernig þetta fer... ég ætla amk ekki að þrífa upp hræið... ooohh fæ bara hroll við tilhugsunina.. hvað þá afkvæmi frá þessari tegund OJJ!! En allt er klárt fyrir partyið á eftir... buið að kaupa 40 pylsur og tilheyrandi.. og ég "bakarinn" mallaði 2 skuffukökur í gærkveldi svo allir fengu örugglega sykursjokk sem er nauðsynlegur fylgihlutur. Mér hefur farið ansi mikið fram í kökugerð.. það eru ekki svo mörg ár síðan að securitas mætti á spani á svæðið og tilbuin að hringja í slökkviliðið.. ruddist inn í íbúðina og ætlaði að bjarga öllum.. en þá stóð ég í eldhúsinu með hárblásara til að minnka reykinn... eftir að næstum hafi kviknað í afmælistertu dóttur minnar.
Ætlið þið á Duran Duran.. eða Djúran :) Húsið opnar kl 18 þannig eg ætla að hafa pre-party hjá mér frá fjegur !!! Endilega komiði!!!! Topp tónlist í boði djúran úr gettóblasternum hennar Birtu og stemning rifjuð upp í anda Don Cano og millert ;)

1 Comments:

Blogger Kiddý said...

til hamingju með dótturina elskan. Kysstu hana vel og lengi frá mér. Love Kiddy

3:26 PM

 

Post a Comment

<< Home